Við erum bræðurnir Ólafur Jóhann og Andri Már Steinssynir.
Ég heiti Ólafur Jóhann Steinsson og fæddist 5. mars 2002 eftir að mamma mín fór 2 vikur framyfir. Ég var 16 merkur og 53 cm. með ljóst hár....blá augu og algjör dúlla. Ég var tekinn með keisara þar sem mamma mín var orðin veik og ég mjög þreyttur....svo greindist ég með 3 alvarlega hjartagalla og fór aðeins 2ja daga gamall til Boston á Children´s hospital í 2 stórar aðgerðir....en þið getið lesið allt um það í vefdagbókinni.... Hjartagallarnir mínir heita Coarctatio Aortae sem er ósæðarþrengsli en það er búið að laga ósæðina mína og á það að vera endanlegt, Aoric Stenosis sem er ósæðarlokuþrengsli og er ég búinn að fara í eina hjartalokuþræðingu og er þessi galli undir smásjá enn....og að lokum er það Subaortic Stenosis sem er nokkurs konar vefbandatota, en hún myndaðist á þessu ári og sást fyrst í mars á 2ja ára afmælinu mínu. Pabbi minn heitir Steinn Jóhannsson fæddur 1973 og mamma mín heitir Berglind Ósk Ólafsdóttir fædd 1976.
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.
Litli bróðir heitir Andri Már Steinsson, fæddur 13. maí 2009. Hann var 16 merkur og 53 cm og fæddist á Landspítalanum og tekinn með bráðakeisara eins og ég en voðalega sprækur. Hann er því í nautsmerkinu eins og mamma okkar.
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Ólafur
Nafn þetta er víxlmynd við fornnorræna nafnið "Áleifur" sem er samsett af forliðnum "Anu" sem merkir forfaðir og viðliðnum "laibar" sem merkir afkomandi, - erfingi.
Jóhann
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
Andri
Nafnið Andri er norrænt nafn og merkir skíði.
Már
Nafnið Már er fengið af nafnorðinu "már" sem merkir mávur.
